Jahá...þetta var viðburðarríkur laugardagur
hjá mér verð ég að segja......allveg hreint stórmerkilegt. En
það byrjaði allt á því að það var keyrt á voffann minn, eða
með öðrum orðum að þá hljóp hann á bíl á mikilli ferð en hann
tók bara nokkrar veltur á götunni og stóð svo í lappirnar og
hljóp heim til múttu sinnar,hehe.....hann fékk heilahristing
og ældi þó nokkrum sinnum og var hálf ringlaður greyið litla,
fjúff, eins gott að litla krúttið mitt er svona harður af sér
þó hann líti út fyrir að vera besta skinn.

En já svo um kvöldið hittumst við bekkjarsysturnar + Helga heima
hjá mér og fengum okkur nokkra sjússa áður en við héldum í
tvítugsafmælið hennar Helgu Dagnýjar á Hverfisbarnum
Það var mjög
mikið stuð í afmælinu og við dönsuðum af okkur rassinn, en það var
nú samt eins og ógæfan ætlaði ekki allveg að yfirgefa mig, og það
mætti eiginlega halda að það hafi verið fullt tungl þar sem mér
fannst allt vera í einhverjum óhöppum í kringum mig þetta kvöld,
Bjarki meiddi sig á hverfis í tröppunum. En já,svo ákvað ég að fá
bara far með Arnari og Helgu heim því ég var svo svöng og nennti
ekki að dansa meira, en þá lentum við í svakalegu óhappi, með því
að lenda í þessu svaðalega bílslysi. Sem betur fer sluppum við
svona semí ómeidd.....mér finnst bara eins og ég hafi verið buffuð
af svona 100 steratröllum. Þetta hefði getað farið verr svo það er
svosem ekkert til að kvarta yfir,en auðvitað bara leiðinlegt að
lenda í svona, en skryngilega lærdómsríkt um leið. Svona var þessi
örlagaríki laugardagur hjá mér og ætla ég að láta fylgja örfáar
myndir þar sem ég tók ekki svo svakalega margar













En svo var ég líka að koma heim frá Danmörku þar sem ég fór að
heimsækja elskulega kærastann minn
það var mjög svo yndisleg ferð
í alla staði, og égá örugglega eftir að lifa á henni í næstu 2
mánuði sem ég mun ekki sjá Rúnna minn......Leiðinlegt! En að var
margt brallað en mjög mikill meirihluti einkenndist af mérí búðum
og rúnna pokadýri í símanum útí horni, hehe.....Ætla að láta fylgja
nokkrar myndir frá Denmark með, og frá allsvakalega partýinu sem
var haldið, og var jafnframt fyrsta og síðasta partý sem mun verða
haldið þarna sagði rúnni, enda var allt bókstaflega í rúst! Þetta
endaði heldur ekki vel þar sem strákurðinn á hæðinni fyrir ofan
hélt fram hjá kærustunni sinni inná skemmtistaðnum sem við vorum
öll ámeðbestu vinkonu hennar og kærastinn hennar var besti vinur
stráksins...égveit frekar flókið,en það endaði með því að aumingja
Gunni þurfti liggur við að svæfa gelluna til að þaðkæmi friður í
húsið þar sem kærastinn hennar rumskaði ekki við það þegar þau
börðu á hurðina....úff hvað maður er heppinn að eiga ekki kærasta
sem heldur framhjá með bestu vinkonu manns fyrir framan nefið á
manni, fjúfffff.....

Við turtilúfurnar
hehe

Christine, sem þurfti að svæfa í sófanum eftir örlagaríkt kvöld
hennar og kæró,og Jói

Jói, Rúnar og Árni. varð að setja þessaút af svipnum á
Rúnna,hann var nýbúinn að taka abcent staup, haha...

Hér eru strákarnir að skála í Abcentinu fæga,shetturinn!
Takk fyrir skemmtilegt en örlagaríkt kvöld elskurnar
mínar, það var æði gaman
XOX
Lilla